Djúphreinsandi froða sem stuðlar að rakajafnvægi – Deeply cleansing foam restores hydro balance PURI-SEBOSTATIC

Hreinsifroða til daglegrar hreinsunar á blandaðri og feitri húð. Hentar einnig þeim sem fá bólur og fílapensla. Mælt er með froðunni fyrir húð sem er þurr vegna lyfjameðmeðferðar vegna bóluvandamála (acne). Fyrir allan aldur og kemur í stað hefðbundinnar sápu.

Árangur og virkni vörunnar fyrir blandaða og feita húð hefur verið sannreyndur með klínískum prófunum.

65% fannst minni umfram fita í húðinni

46% fannst froðan koma í veg fyrir fílapensla

Froðan er mild en hreinsar gaumgæfilega öll óhreinindi og farða. Virkt innihaldsefni hennar unnið úr tamarind þykkni hreinsar létt dauðar húðfrumur og veitir henni raka og hjálpar henni að öðlast jafnvægi. Burdock þykkni og zink PCA koma jafnvægi á fituframleiðslu húðarinnar. 

Öryggi vörunnar

– Ofnæmisprófað

– Klínískt prófað

– Ilmefni án þekktra ofnæmisvalda (alergen free fragrance composition)

– Án SLES

– Án SLS

– Án sápu

Notkunarleiðbeiningar

Setjið eina pumpu í lófann og hreinsið andlitið. Skolið af með vatni. Notið andlitsvatn og krem sem hæfir í kjölfarið. Notið bæði kvölds og morgna.

Innihaldsefni:
  • Tamarind extract – Hreinsar dauðar húðfrumur af yfirborði húðarinnar og hjálpar húðinni að endurheimta rakajafnvægi.
  • Burdock extract – Kemur jafnvægi á bakteríuflóru húðarinnar. Kemur jafnvægi á fituframleiðslu húðarinnar. Bakteríudrepandi.
  • Zinc PCA – Kemur jafnvægi á fituframleiðslu húðarinnar.

Magn: 150 ml