Næturkrem til þess að meðhöndla húð með; bóluvandamál, ójafnan litarhátt eða hrukkur. Þetta krem er hægt að nota allan ársins hring. Mikilvægt er að nota sólarvörn að degi til þegar sýrukrem eru notuð, annað hvort í formi dagkrems eða farða. Á sumrin er mælt með að nota vörn sem er að minnsta kosti með sólarvarnarstuðul SPF 20.
Öryggi og árangur vörunnar hefur verið sannreyndur með klínískum rannsóknum.
68% fannst húðin sléttari
64% fannst kremið koma jafnvægi á fituframleiðslu
57% sagði eldri ójöfnur hverfa
Kremið inniheldur 10% möndlusýru sem „slípar” húðina. Kremið bætir áferð húðarinnar, kemur jafnvægi á fituframleiðslu hennar og gerir hana sléttari. Möndlusýra hreinsar dauðar húðfrumur og önnur óhreinindi sem loka svitaholum. Svitaholur og aðrar misfellur í húðinni sjást minna. Kremið dregur úr ójöfnum sem myndast hafa vegna bóla um leið og það örvar nýmyndunarferli húðarinnar. Notkun kremsins minnkar hættu á myndun öra og bletta á húðinni. Möndlusýra hjálpar einnig til við að lýsa upp bletti sem þegar hafa myndast vegna bóla. Möndlusýra og Sweet almond prótein vinna saman að því að sporna gegn fínum línum og hrukkum. Húðin verður mýkri og bjartari.
Öryggi vörunnar:
– Ofnæmisprófað
– Klínískt prófað
– Inniheldur engin efni sem vitað er að geta valdið ofnæmi (Allergen free)
– Án ilmefna
Notkunarleiðbeiningar
Berið lítið magn af kreminu á húðina eftir að hún hefur verið hreinsuð. Notið ekki á augnsvæðið eða í kringum munn. Notið að kvöldi eða samkvæmt leiðbeiningum húðlæknis. Þegar byrjað er að nota vöruna getur húðin í fyrstu orðið rauð og flagnað eilítið, það er eðlilegt.
Innihaldsefni:
- 10% mandelic acid – Hefur bakteríuhamlandi eiginleika. Það hreinsar húðþekjuna (ysta lag húðarinnar) af dauðum húðfrumum og öðrum óhreinindum. Það spornar gegn myndun fílapensla, og dregur úr þeim. Það dregur úr bólum. Minnkar fínar línur og hrukkur. Jafnar húðlit og gerir áferð húðarinnar sléttari og fíngerðari.
- Sweet almond proteins – Gerir húðina sléttari þannig að hún verður frísklegri og hraustari að sjá.
Magn: 50 ml