
Þetta augnkrem er ætlað til daglegrar notkunar fyrir þroskaða húð. Það vinnur gegn dökkum baugum og þrota í kringum augun.
Árangur og virkni vörunnar fyrir húð sem á það til að fá háræðaslit og verður auðveldlega rauð hefur verið sannreyndur með klínískum prófunum.
92% fannst kremið gera húðina sléttari
76% fannst húðin í kringum augun verða bjartari
Augnkremið inniheldur virk efni sem draga úr dökkum baugum og þrota í kringum augun. Rannsóknir sýndu fram á 64% minni bauga og 60% minni þrota á augnsvæðinu eftir reglulega notkun. Augnkremið inniheldur E vítamín sem er náttúrulegt andoxunarefni og spornar gegn öldrun húðarinnar. Augnkremið er með sólarvarnarstuðul SPF 15 sem ver viðkvæmu húðina í kringum augun fyrir UVA og UVB geislum. Augnkremið hefur bæði sefandi og róandi áhrif á húðina.
Öryggi vörunnar:
– Ofnæmisprófað
– Klínískt prófað
– Án parabena
– Án ilmefna
– Án efna sem vitað er að geta valdið ofnæmi (allergen free)
Notkunarleiðbeiningar
Hreinsið húðina með Pharmaceris hreinsi og berið síðan augnkremið á í hæfilegu magni. Varist að láta kremið fara inn í augun. Notið daglega í að minnsta kosti 4 vikur.
Innihaldsefni:
Soy and rice protein complex – Dregur verulega úr dökkum baugum og þrota. Minnkar ummerki öldrunar. Veitir langvarandi rakagjöf og næringu.
Canola oil – Inniheldur mikið magn E vítamíns sem er sefandi, dregur úr sýkingum og verndar gegn þurrki.
Allantoin – Hefur róandi eiginleika og örvar nýmyndunarferli húðarinnar.
Magn: 15 ml