Micellar hreinsivatn sem ætlað er til daglegrar hreinsunar á húð með viðkvæmt háræðanet. Hreinsivatnið hentar öllum aldri og hreinsar bæði farða og önnur óhreinindi. Kemur í staðinn fyrir hefðbundnar hreinsivörur. Árangur og virkni vörunnar hefur verið sannreyndur með klínískum prófunum.
90%veitir raka
84% mýkir og sefar
Þetta micellar hreinsivatn hreinsar farða og önnur óhreinindi án þess að erta húðina. Það er svo milt að það má einnig nota á augun. Það inniheldur B3 vítamín sem hjálpar húðinni að endurnýja sig og minnkar roða í húðinni. Hrísgrjónaprótein og mangó vax veita húðinni raka og næringu.
Öryggi vörunnar:
Árangur og virkni vörunnar fyrir húð sem á það til að fá háræðaslit og verður auðveldlega rauð hefur verið sannreyndur með klínískum prófunum.
– Ofnæmisprófað
– Klínískt prófað
– Án Parabena
– Án alkohóls
Notkunarleiðbeiningar
Setjið hæfilegt magn af hreinsivatni í bómull og hreinsið augu og andlit varlega. Endurtakið uns bómullin verður hrein. Berið krem á húðina. Notist daglega kvölds og morgna.
Innihaldsefni:
- Mango wax – Rakagjafi sem virkar djúpt ofaní húðinni. Það verndar ysta lag húðarinnar og hjálpar húðinni að endurnýja sig.
- Vitamin B3 – Hjálpar húðinni að styrkja náttúrulegt varnarlag húðþekjunnar. Styrkir háræðanetið þannig að húðin verður minna rauð. Örvar efnaskipti kollagens og kemur jafnvægi á seramíð framleiðslu húðarinnar. Eykur rakainnihald húðarinnar og teygjanleika hennar. Húðliturinn verður jafnari og húðin mýkri og stinnari.
- Rice Proteins – Veitir góðan raka og næringu sem endist.
Magn: 200 ml