Djúpnærandi dag- og næturkrem – Multilipid nourishing face cream LIPO-SENSILIUM

Þetta djúpnærandi krem er fyrir viðkvæma húð sem á til að fá ofnæmi. Hentar fyrir þá sem eru með mjög þurra húð með þurrkubletti og flögnun. Árangur og virkni vörunnar fyrir viðkvæma húð og ofnæmi hefur verið sannreyndur með klínískum prófunum.

81% fannst kremið gefa góðan raka

85% fannst kremið sefa og mýkja

Milt krem með nauðsynlegum næringarefnum fyrir þurra húð. Endurnærir húðina og fyllir á fituforða hennar. Kremið myndar einstaka vörn gegn þurrki með því að styrkja ysta lag hennar. Yndisleg innihaldsefnin mýkja húðina þannig að hún verður mjúk og hættir að vera strekkt. Viðgerðarpeptíð hjálpa til við að örva nýmyndun frumna þannig að húðin verður mýkri og teygjanlegri. Kremið kemur jafnvægi á ónæmiskerfi húðarinnar og minnkar pirring í húðinni. Einstök innihaldsefni þess örva verndandi flóru húðarinnar og verja hana þannig gegn ofurviðkvæmni. Minnkar roða, þurrk og kláða þannig að húðin  verður heilbrigðari. 

Öryggi vörunnar:

Virkni og öryggi vörunnar hefur verið prófað og sannreynt af húðlæknum.

– Ofnæmisprófað

– Klínískt prófað

– Án ilmefna

Notkunarleiðbeiningar

Hreinsið húðina með Pharmaceris hreinsi og berið síðan kremið á í hæfilegu magni bæði kvölds og morgna. Kremið fer vel ofan í húðina og hentar því vel sem farðaundirlag. Stíflar ekki húðina. Þetta krem inniheldur ekki SPF og því er gott að nota farða sem veitir vörn þegar það er notað sem dagkrem.

Innihaldsefni:
  • IMMUNO-PREBIOTIC FORMULA – Sefar húðina og minnkar ertingu í henni. Hjálpar til við að minnka viðkvæmni húðarinnar.
  • Leukine-Barrier formula – Hjálpar til við að koma jafnvægi á ónæmiskerfi húðarinnar og sefar hana.
  • 8,5% dermo lipids – Næringarefni sem örva endurnýjunarferli húðarinnar. Endurnæra húðina og veita henni raka. Vernda húðina gegn rakatapi og þurrki.

Magn: 50 ml