Rakagefandi dagkrem með SPF 20 – Deeply moisturizing face cream SPF 20 VITA-SENSILIUM

Dagkrem til daglegra nota fyrir viðkvæma eða ofnæmishúð. Ætlað fyrir þá sem eru með þurra húð og vantar raka. Árangur og virkni vörunnar fyrir viðkvæma húð og ofnæmi hefur verið sannreyndur með klínískum prófunum.

92% fannst kremið sefa húðina og minnka þurrk*

92% fannst húðin endurnærð af raka*

Kremið veitir raka sem helst vel í húðinni. Það mýkir húðina og bætir teygjanleika hennar. Einstök rakagefandi og nærandi innihaldsefni styrkja ysta lag húðarinnar sem verndar hana gegn rakatapi. Kremið verndar húðina gegn skaðlegum umhverfisáhrifum og UV vörn ver hana gegn ótímabærri öldrun. Innihaldsefnin hjálpa til við að koma jafnvægi á ónæmiskerfi húðarinnar og sefa hana. Kremið örvar náttúrulega verndandi flóru húðarinnar þannig að hún verður ekki eins viðkvæm. Minnkar roða, þurrk og kláða þannig að húðin verður heilbrigðari. 

Öryggi vörunnar:

Virkni og öryggi vörunnar hefur verið sannreynt og prófað af húðlæknum.

– Ofnæmisprófað

– Klínískt prófað

– Án Parabena

– Án ilmefna

Notkunarleiðbeiningar

Hreinsið húðina með Pharmaceris hreinsi og berið síðan kremið á í hæfilegu magni. Kremið er létt, fer fljótt og vel ofan í húðina og hentar vel sem farðaundirlag. Kremið stíflar ekki húðina.

Innihaldsefni:
  • IMMUNO-PREBIOTIC FORMULA – Sefar húðina og minnkar ertingu. Hjálpar til við að minnka viðkvæmni húðarinnar.
  • Cogon grass – Stuðlar að því að rakinn haldist í húðinni.
  • Green algae – Hjálpar húðinni að draga í sig nauðsynleg næringarefni. Veitir raka, mýkir húðina og kemur í veg fyrir grófa húð.
  • Olive wax – Mildur næringar- og rakagjafi.
  • Glucam® – Bindur raka í húðinni og gerir það að verkum að hann helst lengi í húðþekjunni. Það hjálpar húðinni að endurheimta teygjanleika og styrk þannig að hún verður mýkri og sléttari.

Magn: 50 ml.