
Hreinsigel sem ætlað er til daglegrar hreinsunar á þurri húð sem er sérstaklega viðkvæm og húð sem fær ofnæmi. Það er hannað fyrir húð sem þolir ekki sápu. Hentar einnig þeim sem hafa farið í húðmeðferðir sem gera húðina viðkvæmari. Hentar öllum aldri.
Árangur og virkni vörunnar fyrir viðkvæma húð og ofnæmi hefur verið sannreyndur með klínískum prófunum.
91% fann fyrir meiri raka í húðinni eftir notkun
87% fannst húðin frískari eftir notkun
Öryggi vörunnar:
Virkni og öryggi vörunnar hefur verið sannreynt og prófað af húðlæknum.
– Ofnæmisprófað
– Klínískt prófað
– Án Parabena
– Án sápu
– Án SLS og SLES
– Án litarefna
– Án ilmefna
Notkunarleiðbeiningar
Tvöföld virkni – hægt að nota bæði með vatni eða án þess. Setjið gelið í lófann eða í bómull, hreinsið það síðan af með vatni eða bómull. Varist að láta gelið berast í augun. Berið að lokum viðeigandi krem frá Pharmaceris sem hentar þinni húðgerð á húðina. Njótið þess að þrífa húðina daglega.
Innihaldsefni:
- Mango wax – Rakagjafi sem virkar djúpt í húðinni. Verndar ysta lag húðarinnar og hjálpar henni að endurnýja sig.
- Glucam® – Bindur raka í húðinni þannig að rakinn helst lengi í húðþekjunni. Hjálpar húðinni að endurheimta teygjanleika og styrk þannig húðin verður mýkri og sléttari.
- Allantoin – Hefur sefandi áhrif sem veitir vellíðan.
- D-panthenol – Hefur róandi áhrif og byggir upp mótstöðu húðarinnar þannig hún verður minna viðkvæm.
Magn: 190 ml